{"product_id":"endurnyjun-innri-orka-copy","title":"Strawberry moon","description":"\u003ch1\u003e\u003cspan style=\"color: rgb(230, 20, 195);\"\u003e\u003cb\u003eStrawberry Moon\u003c\/b\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/h1\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cb\u003eMýkt, mörk \u0026amp; djúp hvíld\u003c\/b\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eHeildræn endurstilling og persónuleg stefnumótun\u003c\/b\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch5\u003eUndir ljósi Strawberry Moon bjóðum við þér á einstakt námskeið fyrir konur þar sem við hægjum á, lítum inn á við og gefum okkur rými til að slaka á. \u003cspan class=\"Apple-converted-space\"\u003e \u003c\/span\u003e\n\u003c\/h5\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003eÍ hraða dagsins gleymum við oft að staldra við og spyrja okkur hvað við þurfum í raun og veru. Þetta kvöld er boð um að leggja niður hlutverkin, kröfurnar og verkefnalistana um stund og skapa rými fyrir mýkt, tengingu og djúpa hvíld.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKvöldið hefst í töfrandi umhverfi Fantasíu í Vinnustofu Kjarvals, þar sem við komum saman í hlýlegu rými með útsýni yfir miðborgina. Í gegnum létta fræðslu, samtal, ígrundun og mjúka hreyfingu skoðum við:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• \u003cstrong\u003eSvefn, streitu og taugakerfið\u003c\/strong\u003e – hvernig getum við skapað meira öryggi, jafnvægi og hvíld í lífi okkar?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• \u003cstrong\u003eMörk og orkustjórnun \u003c\/strong\u003e– hvar erum við að gefa meira en við eigum inni og hvernig getum við hlustað betur á þarfir okkar?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• \u003cstrong\u003eMýkt og innsæi\u003c\/strong\u003e – hvað vill hjartað segja okkur þegar við hægjum á og gefum því rými?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• \u003cstrong\u003eAð sleppa tökum\u003c\/strong\u003e – hvað er tilbúið að fara og hvað viljum við kalla inn í næsta kafla lífsins?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar kvölda tekur færum við okkur niður að sjónum í Skerjafirði þar sem Þóra Hrund leiðir okkur í nærandi gusuathöfn. Með hita, ilmi, sjó og náttúru sem bakgrunn fáum við tækifæri til að hreinsa hugann , losa spennu úr líkamanum og tengjast okkur sjálfum á dýpri hátt undir orkunni frá fullu tungli.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAð lokum leggjumst við niður í djúpa Yoga Nidra slökun undir leiðsögn Erlu, þar sem taugakerfið fær tækifæri til að endurstilla sig og líkami og hugur að sökkva inn í kyrrð og hvíld.\u003c\/p\u003e\n\u003ch5\u003e\u003cspan style=\"color: rgb(204, 25, 204);\"\u003eAllir gestir fá vinnubók, veglegan gjafapoka, munum dagbók og áskrift af SheSleep appinu.\u003c\/span\u003e\u003c\/h5\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eLeiðbeinendur\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eDr. Erla Björnsdóttir\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003eSálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum, svefnsérfræðingur og Yoga Nidra kennari. Stofnandi Betri svefns og SheSleep.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003eÞóra Hrund Guðbrandsdóttir\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003eMark- og teymisþjálfi, gusumeistari og eigandi Munum.\u003c\/p\u003e","brand":"m u n u m","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46621724803126,"sku":null,"price":16900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1604\/4205\/files\/Stick_to_the_plan_not_your_mood-6.png?v=1781854279","url":"https:\/\/munum.is\/is\/products\/endurnyjun-innri-orka-copy","provider":"m u n u m","version":"1.0","type":"link"}