Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

m u n u m

Strawberry moon

Strawberry moon

Upprunalegt verð 16.900 ISK
Upprunalegt verð Tilboðsverð 16.900 ISK
Útsala Uppselt
Taxes included.
Fjöldi

Strawberry Moon

Mýkt, mörk & djúp hvíld

Heildræn endurstilling og persónuleg stefnumótun

Undir ljósi Strawberry Moon bjóðum við þér á einstakt námskeið fyrir konur þar sem við hægjum á, lítum inn á við og gefum okkur rými til að slaka á.  


Í hraða dagsins gleymum við oft að staldra við og spyrja okkur hvað við þurfum í raun og veru. Þetta kvöld er boð um að leggja niður hlutverkin, kröfurnar og verkefnalistana um stund og skapa rými fyrir mýkt, tengingu og djúpa hvíld.

Kvöldið hefst í töfrandi umhverfi Fantasíu í Vinnustofu Kjarvals, þar sem við komum saman í hlýlegu rými með útsýni yfir miðborgina. Í gegnum létta fræðslu, samtal, ígrundun og mjúka hreyfingu skoðum við:

Svefn, streitu og taugakerfið – hvernig getum við skapað meira öryggi, jafnvægi og hvíld í lífi okkar?

Mörk og orkustjórnun – hvar erum við að gefa meira en við eigum inni og hvernig getum við hlustað betur á þarfir okkar?

Mýkt og innsæi – hvað vill hjartað segja okkur þegar við hægjum á og gefum því rými?

Að sleppa tökum – hvað er tilbúið að fara og hvað viljum við kalla inn í næsta kafla lífsins?

Þegar kvölda tekur færum við okkur niður að sjónum í Skerjafirði þar sem Þóra Hrund leiðir okkur í nærandi gusuathöfn. Með hita, ilmi, sjó og náttúru sem bakgrunn fáum við tækifæri til að hreinsa hugann , losa spennu úr líkamanum og tengjast okkur sjálfum á dýpri hátt undir orkunni frá fullu tungli.

Að lokum leggjumst við niður í djúpa Yoga Nidra slökun undir leiðsögn Erlu, þar sem taugakerfið fær tækifæri til að endurstilla sig og líkami og hugur að sökkva inn í kyrrð og hvíld.

Allir gestir fá vinnubók, veglegan gjafapoka, munum dagbók og áskrift af SheSleep appinu.


Leiðbeinendur

Dr. Erla Björnsdóttir
Sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum, svefnsérfræðingur og Yoga Nidra kennari. Stofnandi Betri svefns og SheSleep.

Þóra Hrund Guðbrandsdóttir
Mark- og teymisþjálfi, gusumeistari og eigandi Munum.

Sjá vörulýsingu