m u n u m
Venjuáskorun munum 2026
Venjuáskorun munum 2026
Couldn't load pickup availability
Langar þig að byrja árið á því að skerpa á venjum þínum – ekki með fullkomnun, heldur festu?
Margir fara inn í nýtt ár og vilja byrja að krafti og setja sér svokölluð áramótaheit. Þau eru oft til þess fallin að takast ekki og stór meirihluti markmiða renna í sandinn og mörg búin að gefast upp um miðjan mánuð. Það er ekki endilega afþví að markmiðin eru svo stór og yfirstíganlega heldur er það hvernig við nálgumst markmiðin okkar og oftar en ekki ætlum við okkur um of og setjum okkur of mörg markmið í einu.
Í þessari 21 daga venjuáskorun færðu rými, aðhald og hvatningu til að byggja amk. eina venju sem þú veist að mun bæta líf þitt. Ekki tíu hluti í einu. Bara einn. Meðvitað. Skref fyrir skref, því lítil skref geta fært þér nýja útkomu.
Áskorunin fer fram í lokuðum hópi, þar sem þú færð:
-
fræðslu og vinnubók um venjur, fókus og sjálfsaga
-
daglega hvatningu og milda áminningu
-
aðhald og samfélag sem styður þig áfram
-
öruggt rými til að mæta – eins og þú ert
✨ Hvernig virkar þetta?
-
Þú velur eina venju sem skiptir þig máli
-
Þú skuldbindur þig í 21 dag
-
Þú mætir daglega – jafnvel þegar mótstaðan mætir
-
Í lokin hefur þú ekki bara „klárað áskorun“ – þú hefur styrkt sjálfstraustið og tenginguna við sjálfa þig
🎁 Verðlaun fyrir að standa við sjálfa þig
Þátttaka kostar 19.900 kr
Ef þú stendur við ásetninginn alla 21 dagana færðu
👉 10.000 kr endurgreiddar í lokin
– sem þú notar til að verðlauna sjálfa þig 💛
(vegna þess að innri agi á skilið viðurkenningu)
📅 Dagsetningar: 10.–31. janúar
👥 Form: Lokaður hópur með fræðslu, hvatningu og aðhaldi
🎯 Fyrir hvern?
Fyrir konur sem vilja:
-
skapa festu án fullkomnunar
-
byggja sjálfstraust með litlum skrefum
-
byrja árið af krafti en líka í mildi
👉 Þetta snýst um að mæta sjálfri þér – aftur og aftur og standa við eigin loforð
Deila
