m u n u m
Strawberry moon
Strawberry moon
Couldn't load pickup availability
Strawberry Moon
Mýkt, mörk & djúp hvíld
Heildræn endurstilling og persónuleg stefnumótun
Undir ljósi Strawberry Moon bjóðum við þér á einstakt námskeið fyrir konur þar sem við hægjum á, lítum inn á við og gefum okkur rými til að slaka á.
Í hraða dagsins gleymum við oft að staldra við og spyrja okkur hvað við þurfum í raun og veru. Þetta kvöld er boð um að leggja niður hlutverkin, kröfurnar og verkefnalistana um stund og skapa rými fyrir mýkt, tengingu og djúpa hvíld.
Kvöldið hefst í töfrandi umhverfi Fantasíu í Vinnustofu Kjarvals, þar sem við komum saman í hlýlegu rými með útsýni yfir miðborgina. Í gegnum létta fræðslu, samtal, ígrundun og mjúka hreyfingu skoðum við:
• Svefn, streitu og taugakerfið – hvernig getum við skapað meira öryggi, jafnvægi og hvíld í lífi okkar?
• Mörk og orkustjórnun – hvar erum við að gefa meira en við eigum inni og hvernig getum við hlustað betur á þarfir okkar?
• Mýkt og innsæi – hvað vill hjartað segja okkur þegar við hægjum á og gefum því rými?
• Að sleppa tökum – hvað er tilbúið að fara og hvað viljum við kalla inn í næsta kafla lífsins?
Þegar kvölda tekur færum við okkur niður að sjónum í Skerjafirði þar sem Þóra Hrund leiðir okkur í nærandi gusuathöfn. Með hita, ilmi, sjó og náttúru sem bakgrunn fáum við tækifæri til að hreinsa hugann , losa spennu úr líkamanum og tengjast okkur sjálfum á dýpri hátt undir orkunni frá fullu tungli.
Að lokum leggjumst við niður í djúpa Yoga Nidra slökun undir leiðsögn Erlu, þar sem taugakerfið fær tækifæri til að endurstilla sig og líkami og hugur að sökkva inn í kyrrð og hvíld.
Allir gestir fá vinnubók, veglegan gjafapoka, munum dagbók og áskrift af SheSleep appinu.
Leiðbeinendur
Dr. Erla Björnsdóttir
Sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum, svefnsérfræðingur og Yoga Nidra kennari. Stofnandi Betri svefns og SheSleep.
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir
Mark- og teymisþjálfi, gusumeistari og eigandi Munum.
Share
