Fara í upplýsingar um vöru
1 of 1

m u n u m

Gusu seramónía á fullu tungli

Gusu seramónía á fullu tungli

Upprunalegt verð 9.900 ISK
Upprunalegt verð Tilboðsverð 9.900 ISK
Tilboð Uppselt
Taxes included.
Fjöldi

Gusu seramónía á fullu tungli í Fiskum 
Föstudaginn 28. ágúst kl.20:00-22:00

Svitabað sauna - Skerjafirði

Á föstudaginn er fullt tungl í Fiskunum, og í þetta sinn fylgir því líka deildarmyrkvi á tungli, sem gerir þetta fulla tungl enn kraftmeira.

Fiskarnir eru vatnsmerki innsæis, tilfinninga og sköpunar. Þegar tunglið er fullt í þessu merki opnast fyrir djúpa tilfinningalega hreinsun. Það sem hefur setið fast fær rými til að fara og innsæið fyrir eitthvað nýtt verður skýrara. Þetta er tími til að sleppa takinu á því sem er lokið og líta inn á við og hlusta á það sem er að kalla á athygli.

Við nýtum þessa orku í kvöldsins í gusu og seremóníu við eldinn þar sem djúp slökun og ígrundun hjálpar líkama og huga að sleppa taki og finna innri ró. Við ætlum að skrifa niður það sem kemur til okkar og sleppa takinu af því sem tilheyrir fortíðinni og skapa rými og kraft inn í nýjan kafla. Boðið verður upp á cacao fyrir þá sem vilja.

Takmarkað pláss

 

Sjá vörulýsingu