Fara í upplýsingar um vöru
1 of 3

m u n u m

Munum x Urð - Endurnærandi dekur gusa og sjálfsrækt

Munum x Urð - Endurnærandi dekur gusa og sjálfsrækt

Upprunalegt verð 14.900 ISK
Upprunalegt verð Tilboðsverð 14.900 ISK
Tilboð Uppselt
Taxes included.
Dekurgusa kl.13:00
Dekurgusa kl.15:00
Fjöldi

Munum x Urð - Endurnærandi dekur gusa og sjálfsrækt
Gefðu sjálfri þér gjöf sem nærir líkama og sál á Valentínusardaginn. 

Endurnærandi URÐ gusa og 10 daga sjálfsræktaráskorun í samstarfi við munum. Saunan er staðsett í Skerjafirði og fer fram laugardaginn 14. febrúar á sjálfan valentínusardaginn kl.13:00 og 15:00 


Leyfðu þér að stíga út úr amstri dagsins og inn í rými sem nærir þig á líkama og sál. Gusan er heildræn upplifun þar sem þú færð tækifæri til að hvílast, tengjast sjálfri þér, stilla orkuna þína, sleppa tökunum á því sem ekki þjónar þér og bjóða nýja orku velkomna.

 

Dekurstund í saununni

Við byrjum á endurnærandi URÐ gusu þar sem hiti, ilmur og nánd við náttúruöflin spila saman. Þú færð veglegan spa-pakka frá URÐ sem inniheldur hágæða vörur, sérvaldar fyrir þessa stund. Erla hjá URÐ leiðir þig í gegnum það hvernig vörurnar eru notaðar til að hámarka slökun og næra húðina, allt frá djúphreinsandi skrúbbi yfir í slakandi sjálfsnudd með ilmandi olíum. Þóra Hrund hjá munum leiðir gusuna sem er byggð upp á þremur lotum í hita með hressandi kælingu á milli, þar sem við fókuserum á að stilla orkuna og skapa rými fyrir nýjar og betri venjur sem styðja við þína vellíðan.

10 daga vellíðunaráskorun

Upplifuninni lýkur ekki þegar þú stígur út úr saununni. Spa-pakkinn fylgir þér heim og verður þitt helsta verkfæri í 10 daga vellíðunaráskorun sem fylgir í kjöfarið.

Í gegnum lokaðan hóp á Instagram styðjum við við þig með nýju verkefni á hverjum degi þar sem við nýtum vörurnar frá Urð og verkefni frá Munum til að móta góðar, einfaldar venjur sem styðja við þína andlegu og líkamlegu heilsu. Markmiðið er að hjálpa þér að skapa þína eigin vellíðunarrútínu sem endist löngu eftir að áskoruninni lýkur.


Innifalið í upplifuninni:

URÐ gusa: Þrjár lotur af leiðbeindri gusu og kælingu.

Veglegur spa-pakki: Allt sem þú þarft fyrir dekrið á staðnum og áskorunina heima.

Kennsla og leiðsögn: Við förum yfir hvernig best er að nota vörurnar og vinna með þína vellíðan.

10 daga áskorun: Dagleg hvatning og verkefni í lokuðum hóp á Instagram.

Léttar og orkugefandi veitingar


Hvenær: Laugardaginn 14. febrúar kl. 13:00 og 15:00. 

Hvar: Svitabaði - Skerjafirði. 

Hægt er að velja um tvær tímasetningar, kl.13:00 & kl.15:00


Gefðu sjálfri þér (eða vinkonu) stund sem skilar sér í betri venjum fyrir líkama & sál.

Takmarkað pláss í boði. Við mælum með að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti.

Sjá vörulýsingu