munum dagbókin
er hönnuð með það að leiðarljósi að auðvelda skipulag, markmiðasetningu og tímastjórnun, auka yfirsýn, efla jákvæða hugsun og hvetja til framkvæmda.
-
munum dagbók 2025 - 10 ára afmælisútgáfa - gormur
Regular price 4.543 ISKRegular priceUnit price / per6.490 ISKSale price 4.543 ISKSale -
munum dagbók 2025 -10 ára afmælisútgáfa - Innbundin
Regular price 4.543 ISKRegular priceUnit price / per6.490 ISKSale price 4.543 ISKSale
Hvað getur munum dagbókin hjálpað þér með?
-
MARKMIÐ & DRAUMAR
Markmið eru draumar sem geta orðið að veruleika. Með því að setja sér skýr og raunhæf markmið, búta þau niður í smærri skref og hafa þau mælanleg og innan ákveðins tímaramma má margfalda líkur á árangri. Munum dagbókin er hönnuð með það að leiðarljósi að auðvelda þér þessa vinnu og hvernig þú getur innleitt markmiðin þín inn í daglegt skipulag.
-
VENJUR & RÚTÍNUR
Venjur þínar skilgreina hver þú ert og hafa griðarlega mikil áhrif á líf þitt. Um 40% af tíma okkar á degi hverjum stjórnumst við af venjum, en venjur er það sem við eigum til að gera ítrekað án þess að hugsa eða veita því athygli. Það að skoða venjurnar sínar og gera bætingar á þeim hefur gríðarleg áhrif á líf þitt til lengri tíma.
-
JÁKVÆÐ & ÞAKKLÁT HUGSUN
Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar, með því að einblína á það góða í lífinu, vera þakklátur fyrir það sem maður hefur og einbeita sér frekar að því jákvæða má auka hamingju til muna. Fyrir hverja viku erum við með jákvæða hvatningu sem hugsuð eru til að gefa þér innblástur inn í vikuna. Einnig má finna pláss sem tileinkað er þakklæti vikunnar.
-
HEILSA
Það er ekkert mikilvægara en heilsan okkar því án hennar getum við ekki lifað því lífi sem við viljum. Í dagbókinni hvetjum við þig til þess að setja andlega og líkamlega heilsu í forgang með bættum svefni, hollu mataræði og reglulegri hreyfingu.
-
SKIPULAG & YFIRSÝN
Að hafa gott skipulag og góða yfirsýn yfir tíma sinn og verkefni getur haft góð áhrif á afköst og skipulag bæði til skemmri tíma og lengri. Gott er að hafa yfirsýn fram í tímann og vera þannig betur undirbúin að takast á við verkefni sem bíða manns.
-
TÍMASTJÓRNUN
Með því að skipuleggja árið, mánuðinn, vikuna og daginn á markvissan hátt má auðvelda tímastjórnun og auka líkur á afköstum. Einnig má finna ýmis ráð í tímastjórnun í Munum dagbókinni.
Vikuskipulag fjölskyldunnar
Share
Fréttir & greinar
-
Ert þú búin að gera upp árið?
Nú er árið senn á enda og þá er kjörið tækifæri til þess að gefa sér tíma, líta yfir farinn veg og fara yfir árið sem er að líða. Hvernig...
Ert þú búin að gera upp árið?
Nú er árið senn á enda og þá er kjörið tækifæri til þess að gefa sér tíma, líta yfir farinn veg og fara yfir árið sem er að líða. Hvernig...
-
Venjur þínar skilgreina hver þú ert
Vissir þú að 95% af öllu sem þú hugsar, finnur, gerir eða afrekar er niðurstaða af venjum þínum? Hvort sem það er að bursta tennurnar, þvoir á þér hárið eða...
Venjur þínar skilgreina hver þú ert
Vissir þú að 95% af öllu sem þú hugsar, finnur, gerir eða afrekar er niðurstaða af venjum þínum? Hvort sem það er að bursta tennurnar, þvoir á þér hárið eða...
-
Afhverju að setja sér markmið?
Það skiptir máli að hafa markmið Rannsóknir hafa ítrekað sýnt það að fólk sem setur sér skýr markmið nær meiri árangri í lífinu. Staðreyndir er þó sú að alltof margir...
Afhverju að setja sér markmið?
Það skiptir máli að hafa markmið Rannsóknir hafa ítrekað sýnt það að fólk sem setur sér skýr markmið nær meiri árangri í lífinu. Staðreyndir er þó sú að alltof margir...
ALGENGAR SPURNINGAR
Hvar fæst MUNUM dagbókin?
MUNUM dagbækurnar eru einnig fáanlegar í eftirfarandi verslunum:
- Penninn Eymundsson
- A4
- Salka bókabúð
- Forlaginu
- HRÍM
- Hagkaup
Er sendingagjaldið innifalið í verði?
Sendingagjaldið er innifalið í verðinu því ekki bjóðum við upp á að sækja.
Er hægt að sækja vörur?
Við bjóðum almennt ekki upp á að sækja til okkar vörur en ef það er eitthvað sérstakt tilfelli þá endilega sendu okkur skilaboð.
Hvenær koma bækurnar?
2024 dagbókin kemur til okkar í byrjun Desember. Við komum til með að senda allar bækur frá okkur leið og þær koma í hús.
Hvað er ég lengi að fá pöntunina í pósti?
Við förum með allar pantanir næsta virka dag eftir að pöntun berst. Pósturinn er að taka yfirleitt um 2-5 virka daga eftir staðsetningu.